Skilmálar

 
 

I.    Höfundarréttur 

i.    Allur höfundarréttur að ljósmyndum er í eigu Sól Stefánsdóttir, ljósmyndara [hér eftir „ljósmyndari“.

ii.   Um höfundarrétt ljósmyndara gilda höfundarréttarlög nr. 73/1972.

iii.   Afhending ljósmynda til viðskiptavinar felur lögum samkvæmt ekki í sér framsal á höfundarrétti, né veitir hún heimild til breytinga á  ljósmyndum.

 

II.   Meðferð viðskiptavinar á ljósmyndum

i.    Óheimilt er að fjarlægja merkingu (logo) af ljósmyndum.

ii.   Óheimilt er að nota myndirnar til auglýsinga eða annarrar birtingar nema samið sé sérstaklega um slíkt.

iii.    Óheimilt er að breyta myndum.

 

III.   Meðhöndlun ljósmyndara á ljósmyndum

i.    Ljósmyndari áskilur sér rétt til að birta myndir úr tökum á vefsíðu sinni og samfélagsmiðlum á sínum vegum, nema um annað hafi verið samið.

ii.   Ljósmyndari velur þær ljósmyndir úr myndatöku sem afhentar verða viðskiptavini. Viðskiptavinur velur í framhaldi hvaða myndir verða unnar og afhentar honum. 

iii.   Viðskiptavinur fær undir engum kringumstæðum afhentar allar ljósmyndir sem ljósmyndari tekur í viðkomandi myndatöku.

 

IV.   Varðveisla

i.    Ljósmyndari varðveitir unnar ljósmyndir í fimm ár frá tökudegi til öryggis fyrir viðskiptavin. Eftir þann tíma er varðveisla ljósmynda alfarið á ábyrgð viðskiptavinar.

 

V.   Greiðsla og afhending

i.    Greiðsla fyrir hverja myndatöku skal fara fram samkvæmt samkomulagi viðskiptavinar og ljósmyndara.

ii.   Ljósmyndir úr myndatöku verða ekki afhentar nema að öll greiðsla hafi borist.

iii. Ljósmyndari áskilur sér rétt á 4-9 viknn tima til myndvinnslu sem kvaroast af eoli töku og vinnuálagi.

 

VI.   Annað

i.   Við ráðningu ljósmyndara samþykkir viðskiptavinur ljósmyndun, myndvinnslu, varðveislu, birtingu og aðra vinnslu ljósmyndara í samræmi við skilmála þessa, sbr. lög um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga nr. 90/2018.

ii.   Ef engar athugasemdir um skilmála þessa berast innan viku frá afhendingu mynda, telst viðskiptavinur hafa samþykkt þá. 

Brot á höfundarrétti ljósmyndara og skilmálum þessum varða við höfundarréttarlög og áskilur ljósmyndari sér allan rétt vegna slíkra brota.